Meistaraverk um fórn
13.01.2010 - Sigurður Ólafsson
Fórn Tarkovskíjs er eitt af meistaraverkum kvikmyndasögunnar. Efnið er áleitið, t.d. nú þegar við hugleiðum framlög okkar til hinna hryllilegu hamfara í Haítí. Hvenær fórnar maður í raun einhverju og hvenær stendur nútímamaðurinn við heit um fórnir?

Hver einasta sena er veisla fyrir augað, allt í boði Sven Nykvist, annars snillings. Erland Josephson, sá stórkostlegi leikari, kórónar svo verkið. Ekki má heldur gleyma stórgóðri frammistöðu Guðrúnar Gísladóttur. Það má spyrja sig hvort að íslenskur listamaður hafi nokkurn tíma tekið þátt í merkara listaverki en Fórn Tarkovskíjs.

Birta á Facebook


mySQL error with query SELECT c.citem as itemid, c.cnumber as commentid, c.cbody as body, c.cuser as user, c.cmail as userid, c.cemail as email, c.cmember as memberid, c.ctime, c.chost as host, c.cip as ip, c.cblog as blogid FROM nucleus_comment as c WHERE c.citem=359 ORDER BY c.ctime: Table './vettvangur_com/nucleus_comment' is marked as crashed and should be repaired

Engin ummæli um þessa færslu