Sjaldgjæft hrós til Bjarna
04.01.2010 - Sigurður Ólafsson
Það er sannarlega ástæða til að hrósa Bjarna Benediktssyni, formanni Sjálfstæðisflokksins, í þau annars örfáu skipti sem tilefni er til þess. Til dæmis núna þegar hann er undantekningin í hópi sjálfstæðismanna í því að vera að mestu samkvæmur sjálfum sér. Hann segir nefnilega að skoðun hans sé óbreytt um það að forseti eigi ekki að grípa inn í ákvarðanir Alþingis, með öðrum orðum skrifa undir Icesave.

Bjarni er einn örfárra sem virðast þannig halda sinni skoðun til streitu. Aðrir sveiflast um eins og vindhanar á bjálka. Vinstrimenn glöddust ógurlega og fannst þeir hafa réttlætið höndum tekið þegar að Ólafur Ragnar synjaði fjölmiðlalögunum 2004. Þessir sömu segja stopp núna. Þeir sem hneyksluðust þá og töldu forsetann vera að brjóta gegn stjórnskipun landsins hafa hins vegar snúist núna en gera það flestir í því aumkunnarverða skálkaskjóli að hann verði þá bara að brjóta gegn stjórnskipuninni aftur fyrst hann gerði það síðast.

Annars er þetta með gjána milli þings og þjóðar með aðeins of mikla vikt. Forsetinn nefndi það vissulega þegar að hann ákvað að staðfesta ekki fjölmiðlalögin en veigameiri voru nú samt, ef ég man rétt, áhyggjur hans af afdrifum frumvarpsins á lýðræðislega umræðu. Best að taka fram að ég var ósammála því á sínum tíma að fjölmiðlafrumvarpið gæfi forsetanum tilefni til þess að ganga gegn meirhluta Alþingis, þó að ég væri vissulega mikill andstæðingur þeirrar ofsamiklu aðfarar sem beindist gegn vondu kapítalistunum sem ráku fjölmiðla en voru góða auðvaldinu hans Davíð í hag.

Svo má reyndar spyrja sig hvort að ekki beri að hafa áhyggjur af annarri mun breiðari gjá um þessar mundir, eiginlega bara gljúfri. Nefnilega milli útrásarklappstýru og þjóðar.

Birta á Facebook


mySQL error with query SELECT c.citem as itemid, c.cnumber as commentid, c.cbody as body, c.cuser as user, c.cmail as userid, c.cemail as email, c.cmember as memberid, c.ctime, c.chost as host, c.cip as ip, c.cblog as blogid FROM nucleus_comment as c WHERE c.citem=344 ORDER BY c.ctime: Table './vettvangur_com/nucleus_comment' is marked as crashed and should be repaired

Engin ummæli um þessa færslu