Gráskinnaleikur tíðkast alls staðar
28.12.2009 - Sigurður Ólafsson
Stundum er maður undrandi yfir því hvað þeir sem útlærðir eru sem akademíkerar á Íslandi, eða þeir sem starfa við blaðamennsku, láta fara frá sér mikla vanhugsaða dellu. Þannig mætir það engri gagnrýni þegar því er skellt fram að flokksræði sé hvergi meira en á Íslandi, að spilling sé hvergi meiri og svo heyrist stundum að pólitískur gráskinnaleikur tíðkist óvíða meiri og sé á fáum stöðum óvægnari en á Íslandi.

Flestir þessara dóma eru ekki annað en eitthvað sem sérfræðingarnir skvetta fram án þess að á bak við það liggi nokkrar athuganir. Til dæmis virðast fæstir þeirra nenna að leggja í nokkrar einustu samanburðarrannsóknir, t.d. í nánasta umhverfi á Norðurlöndum, til þess að athuga hvort það gæti hugsanlega verið að Ísland sé ekki alltaf svona einstakt í öllu, bæði góðu og vondu.

Ég er til dæmis nýbúinn með bókina Fyrsten en það er pólitísk ævisaga Mogens Lykketoft, þess gamalgróna danska sósíaldemókraa, gefin út í hálfgerðri óþökk viðfangsefnisins og er, þar af leiðandi, nokkuð gagnrýnin á störf Lykketofts gegnum árin.

Bókin greinir einmitt frá gráskinnaleik danskrar pólitíkur, sérstaklega innanflokksátökum Sósíaldemókratanna dönsku síðustu áratugi og umfjöllunin nær hámarki í ,,kóngamorðinu" (eins og Danir kalla það) á Paul Nyrup þegar að Lykketoft náði formannssætinu í flokknum í hallarbyltingu árið 2003. Þar er enginn annars bróðir í leik, ekki einu sinni hinir fornu vinir Nyrup og Lykketoft sem meira að segja tengdust nánum fjölskyldutengslum. Rauði þráður bókarinnar er að pólitíkin er sama tíkin hvar sem er, það er nákvæmlega ekkert séríslenskt við það.

Titill bókarinnar vísar að sjálfsögðu til frægrar bókar Machiavellis og gefur ekki beint til kynna að höfundurinn ætli að taka fórnarlamb sitt einhverjum vettlingatökum. Satt best að segja finnst mér lýsingarnar á sérstökum kaldranaleika Lykketofts í bókinni stundum ganga dálítið langt, enda fæ ég ekki séð að stjórnmálamenn beiti almennt mildari aðferðum við að ná völdum og halda þeim en Lykketoft gerir.

Þetta er annars fróðlegt samfélagsstúdía á Danmörku undanfarna 3-4 áratugina um það bil og um leið ágætis yfirlit yfir danska stjórnmálasögu sama tíma. Sérstaklega er fróðlegt að fræðast um blokkirnar tvær innan danska sósíaldemókrataflokksins, Auken-blokkina til vinstri og Nyrup-blokkina til hægri (vísar til erkifjendanna Paul Nyrups og Svend Aukens) og hvernig svo Mogens Lykketoft og Ritt Bjerregaard, hitt aðalfólkið í flokknum, spilar á sitt hvort klíkuna til að koma sér sem best fyrir.

Skemmtileg og fróðleg bók fyrir áhugafólk um atburði á bak við tjöldin í stjórnmálum.

Birta á Facebook


mySQL error with query SELECT c.citem as itemid, c.cnumber as commentid, c.cbody as body, c.cuser as user, c.cmail as userid, c.cemail as email, c.cmember as memberid, c.ctime, c.chost as host, c.cip as ip, c.cblog as blogid FROM nucleus_comment as c WHERE c.citem=327 ORDER BY c.ctime: Table './vettvangur_com/nucleus_comment' is marked as crashed and should be repaired

Engin ummæli um þessa færslu