Ef settur væri saman listi yfir þá sem ólíklegastir eru til að senda frá sér jólaplötu þá er ég nokkuð viss um að Bob Dylan hefði hafnað ofarlega á listanum. En honum tekst enn að koma öllum á óvart. Nýja jólaplatan hans er þar að aukin öll með afar hefðbundnu sniði, bæði hvað varðar lagaval og útsetningar. Og ekkert nema allt fínt og yndislegt um það að segja. Platan kemur manni alla vega í jólaskap, alla vega finnst fremur langt leiddum aðdáanda gamla mannsins eitthvað huggulegt við að heyra ráma rödd meistarans syngja klassíkerana alla.
Bob Dylan kemur manni í hátíðarskap. Er ekki Megas næstur?
mySQL error with query SELECT c.citem as itemid, c.cnumber as commentid, c.cbody as body, c.cuser as user, c.cmail as userid, c.cemail as email, c.cmember as memberid, c.ctime, c.chost as host, c.cip as ip, c.cblog as blogid FROM nucleus_comment as c WHERE c.citem=318 ORDER BY c.ctime: Table './vettvangur_com/nucleus_comment' is marked as crashed and should be repaired
Engin ummæli um þessa færslu
