McCall Smith skrifar um íslenskan verðlaunahöfund
09.10.2009 - Sigurður Ólafsson

Það kannast væntanlega flestir íslenskir lesendur við íslenska verðlaunahöfundinn Sigurlín Valdísi Antonsdóttur, þá sem hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir sögu sem á ensku nefnist Cold Waves sem nýlega var þýdd yfir á finnsku og fjallar, að því er virðist, um þorsk á flakki.

Þeir örfáu sem ekki kannast við verðlaunahöfundinn geta lesið um hann í sögu sem skoski metsöluhöfundurinn Alexander McCall Smith (frægastur fyrir sögur sínar um kvenspæjarasögur sínar) birtir þessa dagana í smáköflum á vef breska dagblaðsins the Daily Telegraph.

McCall Smith hefur raunar áður blandað íslenskum menningarforkólfum í atburðarás bóka sinna. Þannig spilaði Sinfóníuhljómsveit Íslands á konsert í Edinborg þegar að voveiflegir atburðir áttu sér stað í upphafi Sunnudagsklúbbs heimspekinganna.

Birta á Facebook


mySQL error with query SELECT c.citem as itemid, c.cnumber as commentid, c.cbody as body, c.cuser as user, c.cmail as userid, c.cemail as email, c.cmember as memberid, c.ctime, c.chost as host, c.cip as ip, c.cblog as blogid FROM nucleus_comment as c WHERE c.citem=228 ORDER BY c.ctime: Table './vettvangur_com/nucleus_comment' is marked as crashed and should be repaired

Engin ummæli um þessa færslu